Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá
Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá






Vörulýsing
JBL Cove X1 er öflugur Wi-Fi og Bluetooth hátalari
sem skilar Dolby Atmos® hljóði, djúpum bassa og skýrum hátíðnitónum. Tengstu
auðveldlega helstu streymisþjónustum, byggðu upp kerfi með JBL One appinu og
njóttu JBL hljómgæða hvar sem er á heimilinu.
JBL Lengendary Sound
JBL Cove X1 hátalarinn skilar ótrúlegum hljómgæðum þar sem öll smáatriði
haldast skýr og greinileg. Með Dolby Atmos® Music umlykur hljóðið þig úr
öllum áttum. Þú heyrir betur öll smáatriði og finnur fyrir kraftmiklum bassanum
sama hvar þú ert staðsettur. Tónlistin hljómar stærri og hljóðmyndin skýrari án
þess að fórna skýrleika eða jafnvægi í hljóðinu.
Streymdu tónlist auðveldlega úr hvaða þjónustu sem er
Hvort sem þú velur Wi-Fi eða Bluetooth, þá er spilun einföld
og þægileg. Hlusta má á tónlist, hlaðvörp eða hljóðbækur frá uppáhaldsveitum
þínum, þar á meðal AirPlay, Google Cast, Spotify Connect, Tidal Connect, Qobuz
Connect, Roon Ready og mörgum fleiri. Þú þarft aðeins að setja í gang og njóta.
Byggðu upp heimahljóðkerfið þitt
Láttu tónlistina fylgja þér á milli herbergja. Með JBL One appinu er
auðvelt að tengja saman alla JBL Cove og JBL Bar MK2. Þú getur líka valið að
hvert herbergi spili sitt eigið efni. Spilaðu sama lagalistann um allt
heimilið, skapaðu mismunandi stemningu í hverju rými eða bættu við öðrum Cove
X1 til að njóta raunverulegs og kraftmikils stereóhljóms. Kerfið er hannað
til að stækka með þér, þannig að þú getur bætt við fleiri JBL hátölurum hvenær sem
er.
Einföld uppsetning með JBL One appinu
Það tekur aðeins þrjú einföld skref að hefjast handa. JBL One appið
tengir Cove X1 fljótt við Wi-Fi netið þitt og gerir þér síðan kleift að
fínstilla hljóðstillingarnar að eigin smekk.
Tónlistin fylgir þér með einni snertingu
Láttu tónlistina flæða á milli herbergja án þess að þurfa að nota síma eða opna
app. Með Music Follows Me eiginleikanum geturðu einfaldlega haldið inni Moment
hnappinum og flutt tónlistina samstundis í það herbergi sem þú ert staddur í.
Einfaldara verður það ekki.
Hlustaðu með Dolby Atmos®
Cove X1 nýtir alla möguleika Dolby Atmos® Music og skapar kraftmikla
og umlykjandi hljóðupplifun. Raddir staðsetjast nákvæmlega þar sem þær eiga að
vera, hljóðfæri fá aukna dýpt og vídd. Þetta er hljóðupplifun eins og
listamennirnir ætluðu sér að hún hljómaði.
Fullkomlega jafnvægisstillt hljóð hvar sem þú situr
Njóttu bestu hljómgæða hvar sem er í herberginu, jafnvel þegar þú
ert á hreyfingu. Þökk sé Constant Sound Field tækninni stækkar hlustunarsvæði
verulega, þannig að hvert sæti verður besta sætið í húsinu. Hljóðupplifunin
helst stöðug, skýr og áhrifamikil óháð staðsetningu þinni.
Nánari tæknilýsing
Hátalarar
Gerð
2x (3.5" x 4.7") bassahátalarar og 4x 1.25" tweeterar
Magnari
200W
Fjöldi hátalara
6
Tíðnisvið
45Hz-20kHz
Net
Bluetooth
5.3
WiFi-Staðall
WiFi-5
Eiginleikar
Airplay 2
Já
Alexa Raddstýring
Já
AI Sound Boost
Já
Auracast
Já
JBL One app
Já
Stærðir
Litur
Svartur
Undirlitur
Svartur
Þyngd
4,9 kg
Stærð (B x H x D)
325 x 265 x 225 mm