Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá
Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Opnar kl 10:00
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá






Vörulýsing
JBL Signature Sound með Hi-Res Audio
Sérhannaðir 12 mm hátalarar með hinni viðurkenndu JBL Signature Sound
hljóðtækni, skila einstaklega skýru, kraftmiklu og vel jafnvægisstilltu hljóði.
Þú færð djúpan og nákvæman bassa, skýra miðtóna og hreina hátóna sem gera
hverja hlustunarstund ánægjulegri.
Hi-Res Audio Wireless tækni tryggir að hvert smáatriði í tónlist,
hlaðvörpum og símtölum skili sér af mikilli nákvæmni. Hvort sem þú ert að
hlusta á uppáhaldslagalistann þinn, fylgjast með hlaðvarpi eða taka símtöl,
verður hljóðið líflegra, ríkara og náttúrulegra.
JBL Spatial Sound tæknin umbreytir hefðbundnu steríóhljóði í víðáttumikla
þrívíddarhljóðupplifun þannig hljóðið virðist streyma úr öllum áttum og skapar
þannig meiri dýpt og raunsæi í hlustuninni.
Smart Charging Case™ fyrir þægilegri notkun
Endurhannaða Smart Charging Case™ hleðsluboxið virkar einnig sem stjórnstöð
fyrir heyrnartólin. Á skjánum má stilla hljóðstyrk, skipta um lög, stjórna hávaðadeyfingu
og umhverfishljóði auk þess að sérsníða hljóðstillingar, allt án þess að nota
síma eða app.
True Adaptive Noise Cancelling 2.0 með rauntímastillingu
Fylgist stöðugt með umhverfinu og dregur úr óæskilegum hávaða. Með JBL
Headphones appinu er hægt að stjórna hversu mikið af umhverfishljóði kemst í
gegn. Ambient Sound er stillanlegt og Smart Talk lækkar sjálfkrafa í
tónlistinni þegar þú byrjar að tala, þannig að auðvelt er að eiga stutt samtöl
án þess að ýta á pásu.
Í JBL Headphones appinu geturðu jafnframt sérstillt hvernig Smart Talk virkar
og lagað eiginleikann að þínum þörfum.
Perfect Calls 2.0
Sex hljóðnemar draga úr umhverfishávaða svo röddin þín heyrist skýrt og
náttúrulega í símtölum. Einnig er hægt að aðlaga símtalsstillingar eftir
aðstæðum.
Allt að 50 klukkustunda spilunartími og þráðlaus hleðsla
Heyrnartólin bjóða upp á allt að 10 klukkustunda spilun og hleðsluboxið
veitir allt að 40 klukkustundir til viðbótar. Tíu mínútna hraðhleðsla með USB-C
gefur allt að 4 klukkustunda hlustun og einnig er stuðningur við Qi þráðlausa
hleðslu.
Ný kynslóð Bluetooth® með LE Audio
Nýjasta kynslóð Bluetooth-tækninnar styður LE Audio (Low
Energy Audio) sem veitir:
Þú getur tekið á móti Auracast™ útsendingum beint í gegnum JBL Headphones appið.
IP54 vatns- og rykvörn
Vatns- og rykvörn samkvæmt IP54 staðli gerir heyrnartólin vel til þess
fallin að fylgja þér í æfingar, dagleg ferðalög og útivist.
Personi-Fi 3.0
Sérsníddu hljóðupplifunina að þinni heyrn og óskum. Personi-Fi 3.0 notar
gagnvirkar stillingar til að skapa sem besta hljóðupplifun.
JBL Headphones app
Með JBL Headphones appinu geturðu sérsniðið hávaðadeyfingu (ANC) að lögun eyrnanna,
breytt stillingum fyrir umhverfishljóð ,snertistýringar og hljóðstillingar.
Einnig er hægt að sérsníða bendingar
og staðsetja heyrnartólin ef þau glatast.
Google Finder og Audio Switch
Finndu heyrnartólin fljótt með hjálp Google Finder og skiptu auðveldlega á
milli síma, spjaldtölvu og fartölvu án þess að rjúfa hlustunina.
Nánari tæknilýsing
Almennar Upplýsingar
Flokkur
Tappar
Heyrnatól
Hátalarastærð
12mm
Næmni
98 dB
Tíðnisvið
20 Hz – 40 kHz
Viðnám
16
Eiginleikar
Active noise cancelling
Já
Ferðahleðsla
Já
Hleðslutími
2 klst
Veðurvörn
Já - IP54
Google Assistant Raddstýring
Já
Hljóðnemi
6
Fylgihlutir
Hleðslubox
Rafhlaða
Ending
7 klst með ANC, 10 klst án ANC
Net
Bluetooth
6
Stærðir
Litur
Svartur
Þyngd
9 gr
Annað
Tengimöguleikar heyrnartóla
Bluetooth
Með hljóðvörn
Já
Gerð fyrir
Tónlist
Annað
JBL Headphone App