JBL NC Tune Buds 2 þráðlaus heyrnartól - Svartur | rafland.is

JBL Pure Bass hljómur með Spatial Sound
JBL Tune Buds 2 þráðlaus heyrnartól eru búin 10 mm kraftmiklum hátölurum sem skila öflugu JBL Pure Bass-hljómi með djúpum og kraftmiklum bassa. Hvort sem þú ert að hlusta á uppáhaldstónlistina þína, horfa á kvikmynd eða spila leik, umbreytir JBL Spatial Sound hefðbundnu stereóhljóði í yfirgripsmeiri og raunverulegri hljóðupplifun.

Virk hljóðdeyfing með Smart Ambient
JBL Tune Buds 2 notar virka hljóðdeyfingu (Adaptive Noise Cancelling) sem gerir þér kleift að útiloka umhverfishljóð að fullu eða hleypa inn nákvæmlega því magni af hljóðum úr umhverfinu sem þú kýst. Með Ambient Aware geturðu stillt hversu mikið af umhverfishljóðum þú heyrir og TalkThru gerir þér kleift að eiga samtöl við fólk í kringum þig án þess að taka heyrnartólin úr eyrunum.

Skýr símtöl
Tveir hljóðnemar á hvoru heyrnartóli nema röddina þína og skila henni eins skýrt og mögulegt er, á meðan innri hljóðnemi dregur úr óæskilegum hávaða. Tækni fyrir umhverfishávaðaminnkun og bergmálsbælingu tryggir að rödd þín heyrist skýrt og náttúrulega, jafnvel þegar þú ert utandyra í vindi eða hávaða. Með JBL Headphones appinu er einnig hægt að stilla hvernig rödd þín og viðmælenda þinna hljómar í símtölum.

Personi-Fi 3.0 persónusniðin hljóðstilling
Njóttu tónlistar eins og hún hentar þér best. Personi-Fi 3.0 gerir þér kleift að sérsníða hljóðið út frá eigin heyrn og óskum. Með gagnvirkum stillingum safnar kerfið upplýsingum um hlustunarvenjur þínar og býr til hljóðferil sem er sérsniðinn að þínum smekk.

Allt að 48 klukkustunda spilunartími
Með virkri hljóðdeyfingu (ANC) færðu allt að 10 klukkustunda spilun á einni hleðslu auk allt að 30 klukkustunda til viðbótar úr hleðsluboxinu, eða allt að 40 klukkustundir. Þegar slökkt er á ANC eykst spilunartíminn í allt að 12 klukkustundir á heyrnartólunum sjálfum og allt að 36 klukkustundir til viðbótar úr boxinu, eða allt að 48 klukkustundir.

IP54 vörn gegn ryki og vatni
JBL Tune Beam 2 heyrnartólin eru með IP54-vottun sem veitir vörn gegn ryki og vatnsslettum. Þau eru því vel til þess fallin að nota við fjölbreyttar aðstæður, hvort sem það er í rigningu, vindi eða á æfingum utandyra.

Athugið: IP54-vottunin á aðeins við um heyrnartólin sjálf, ekki hleðsluboxið.

Fjölpunkta Bluetooth-tenging og Fast Pair frá Google
Skiptu auðveldlega á milli Bluetooth-tækja án þess að þurfa að aftengja og tengja aftur. Ef þú ert til dæmis að horfa á myndband á spjaldtölvu geturðu svarað símtali í símanum samstundis. JBL Tune Beam 2 styður einnig Fast Pair frá Google, sem gerir Android-notendum kleift að para tækin með einni snertingu.

JBL Headphones app

Með JBL Headphones appinu geturðu sérsniðið hlustunarupplifunina að þínum þörfum. Þar geturðu:

  • Stýrt styrk hljóðdeyfingar (ANC)
  • Sérsniðið umhverfishljóðsstillingar
  • Búið til slökunarspilunarlista
  • Athugað hvort heyrnartólin passi rétt í eyrun
  • Fundið týnd heyrnartól
  • Sérsniðið snertistýringar og bendingar
  • Stillt hljóðið sérstaklega fyrir tónlist, myndbönd eða annað efni

Þannig hefurðu meiri stjórn á bæði hljóðinu og virkni heyrnartólanna og getur lagað þau að þínum notkunarvenjum.

Almennar Upplýsingar

Flokkur

Tappar

Heyrnatól

Hátalarastærð

10mm

Næmni

95 dB

Tíðnisvið

20 Hz – 20 kHz

Viðnám

16 ohm

Eiginleikar

Active noise cancelling

Já

Ferðahleðsla

Já

Hleðslutími

2 klst

Veðurvörn

IP54 Rakavörn

Hljóðnemi

Já (Sex)

Fylgihlutir

Hleðslubox / 3 stærðir af eyrnatöppum

Rafhlaða

Ending

10 klst með ANC, 12 klst án ANC

Net

Bluetooth

5.3

Stærðir

Litur

Svartur

Þyngd

5.5 gr

Annað

Tengimöguleikar heyrnartóla

Bluetooth

Með hljóðvörn

Já

Gerð fyrir

Tónlist