Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá
Verslanir
Mín staðsetning:
Veldu staðsetningu
Lokað
Engin skilaboð...
Engin fyrirtæki í boði
Útskrá






Vörulýsing
JBL Quantum Sound hljóð
50 mm Carbon Dynamic hátalarar skila ótrúlega skýrum hljómi, öflugum og djúpum
bassa með lágmarks bjögun, þannig að þú færð skýrari yfirsýn yfir það sem
gerist á vígvellinum og getur brugðist við af öryggi og nákvæmni.
JBL QuantumENGINE
Notaðu JBL
QuantumENGINE-stjórnborðið til að sérsníða hljóðstillingar, staðsetja hljóð í
leiknum með rauntíma sjónrænni framsetningu, draga úr hljóðum frá lyklaborði og
fínstilla frammistöðu og hávaðadeyfingu hljóðnemans. Með JBL QuantumENGINE
geturðu búið til sérsniðnar stillingar fyrir hvern leik, þannig að uppsetningin
styðji alltaf við þína styrkleika. Kerfið virkar á öllum vettvöngum og tengist
öllum JBL Quantum-heyrnartólunum þínum samtímis.
Adaptive Noise Cancelling
Haltu einbeitingunni og samkeppnisforskotinu. Aðlagandi virki
hávaðadeyfirinn síar út truflandi umhverfishljóð og gerir þér kleift að sökkva
þér dýpra inn í hljóðheim leiksins.
JBL Quantum Spatial Sound
JBL Quantum Spatial Sound, sem knúið er af JBL QuantumENGINE, setur þig beint
inn í leikinn. Með því að fanga fleiri smáatriði í hljóði leiksins skapar tæknin
raunhæft endurkast og óm, þannig að hljóðið hreyfist náttúrulega í kringum þig.
Kerfið er fínstillt fyrir mismunandi tíðnisvið og skilar nákvæmri staðsetningu
hljóðs – svo þú heyrir fótspor áður en þau sjást á skjánum, fylgist með
hreyfingum óvina í rauntíma og heldur einbeitingu í leiknum og bregst hraðar
við þegar staðan breytist.
Hljóðnemi með hávaðadeyfingu
6 mm hljóðnemi með cardioid
upptökumynstri tryggir að liðsfélagar þínir heyri skýrt í þér, en ekki í
lyklaborðinu, þökk sé hávaðadeyfingu í gegnum JBL QuantumENGINE. Hægt er að
taka hljóðnemann af fyrir aukin þægindi.
Tvöföld þráðlaus tenging
Tvöföld þráðlaus tenging gerir þér kleift að velja á milli 2,4 GHz fyrir
leikjaspilun með lítilli töf eða Bluetooth 5.3 fyrir hnökralausa daglega
notkun, sem tryggir stöðuga og viðbragðsfljóta tengingu, hvernig og hvar sem þú
spilar.
USB-hljóð með snúru
USB-C hljóðtenging veitir stöðuga tengingu með mjög lítilli seinkun, hönnuð
fyrir samkeppnisleiki, og tryggir að viðbrögð þín séu nákvæmlega samstillt
þegar þú vilt fá sem áreiðanlegasta frammistöðu frá búnaðinum þínum. Veldu
tengingu með snúru til að njóta betra hljóðs þökk sé stuðningi við Hi-Res
hljóðgæði.
Létt og þægileg hönnun
Höfuðband úr sílikoni og eyrnapúðar úr efni sem andar. Þetta dregur úr
truflunum svo þú getir haldið einbeitingu, jafnvel í löngum leikjalotum.
Allt að 30 klukkustunda rafhlöðuending
Rafhlaðan í JBL Quantum 850 Wireless dugar fyrir á allt að 30 klukkustunda
spilunartíma. Ef rafhlaðan tæmist nægir 10 mínútna hleðsla til að bæta við allt
að 2 klukkustundum af notkun.
Virkar á margar gerðir
leikjatölva
Windows, Mac, iPhone,
iPad, Android, PlayStation, Nintendo Switch – ekkert
mál, JBL Quantum 850-heyrnartólin virka með öllu þessu.
Zoom-vottun
JBL Quantum 850-heyrnartólin uppfylla allar tæknilegar kröfur og hljóðkröfur
fyrir Zoom-vottun. Þú getur því líka notað þau fyrir vinnusímtöl.
Nánari tæknilýsing
Almennar Upplýsingar
Flokkur
Leikja
Heyrnatól
Hátalarastærð
50 mm
Næmni
89 dB
Tíðnisvið
20Hz-40KHz
Viðnám
32 ohm
Eiginleikar
Active noise cancelling
Já
Hljóðnemi
Já
Fylgihlutir
Hljóðnemi / USB-C snúra / USB-þráðlaus doungle / Rafhlaða
Rafhlaða
Ending
Allt að 30 klst
Net
Bluetooth
5.3
Stærðir
Litur
Svartur
Þyngd
364g
Annað
Tengimöguleikar heyrnartóla
Bluetooth / Þráðlaus USB
Með hljóðvörn
Já
Gerð fyrir
Leikjaspilun